Viðhald húseigna

Töluvert hefur borið á því undanfarin ár að Fagsmíði taki að sér verkefni fyrir húsfélög þar sem að viðhalda þarf húseigninni að einhverju leyti. Hvort sem er í formi glerskipta, málningarvinnu, þak- eða múrviðgerða og margt fleira.

Eins og áður segir þá er tækjakostur Fagsmíði mjög góður fyrir þess háttar verkefni. Skæralyftur, spjótlyftur, kranabílar og vinnupallar svo einhver dæmi séu tekin um þau tæki sem að við eigum. Þá er verkstæði okkar mjög vel tækjum búið ef þarf að smíða nýjar hurðir eða gluggafög fyrir húseignina þína.

Þá höfum við einnig gert upp gömul hús. Eitt af okkar verkefnum er yfir 100 ára gamalt hús, friðað, sem að við gerðum upp og stendur í Hafnarfirði. Myndir af því má sjá hér neðst.

 

Smelltu hér til að --> Panta skoðun húsasmíðameistara

 

vidhald.jpg

Spjótlyfta að vinnu í fjölbýlishúsi.

Brekkugata.JPG

Brekkugata 11. Rúmlega 100 ára gamalt hús gert upp.

Brekkugata 3.JPG

Brekkugata 11. Rúmlega 100 ára gamalt hús gert upp,