Gluggar og hurðir
Allt frá upphafi hefur Fagsmíði framleitt glugga og hurðir. Verkstæði fyrirtækisins er vel tækjum búið undir slík verkefni. Höfum einnig gert við mikið af gluggum á verkstað. Tökum að okkur hurða-, glugga- og glerísetningar.
Mörg verkefni okkur hafa snúið að þessum verkþáttum. Sem dæmi sá Fagsmíði um glugga- og glerskipti á öllu húsnæði Suðurlandsbrautar 22, Hamraborg 38, Lundarbrekku 12-16, Smiðshöfða 2-4, hjúkrunarheimilinu Skjól og margt fleira.
Þá sjáum við einnig um glerskipti fyrir tryggingafélög þegar tjón verða.
Reynslan er mikil og tækjakosturinn góður. Skæralyftur, spjótlyftur, kranabílar og vinnupallar eru allt tæki sem að við eigum og henta mjög vel í glerskipti.
Smelltu hér til að --> Panta skoðun húsasmíðameistara
Fagsmíði er einnig opinber þjónustuaðili Faris ehf. sem er umboðsaðili Velfac á Íslandi. Velfac er mjög þekkt og vandað vörumerki á sviði ál-timburglugga og hurða. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðu Faris: www.faris.is
