Athugið! 

Eignirnar að Brekkugötu 12 og 14 eru seldar.

Brekkugata 8 og 10 verða boðnar til sölu síðar.

HVERFIÐ

Húsin standa við Brekkugötu í Urriðahverfi í Garðabæ. Skammt frá er Urriðaskóli sem er grunn- og leiksskóli hverfisins. Í næsta nágrenni er einn besti golfvöllur landsins Urriðavöllur, sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðavatn og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvikjum. Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum og er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem þar býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Nánar má lesa um hverfið á vefnum http://urridaholt.is/

HÚSIN

Hvort hús er skráð 207 fermetrar þar af er bílskúr 26 fermetrar. Í hverju húsi fyrir sig er stofa, eldhús og fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi, geymsla ásamt innbyggðum bílskúr.

Á neðri hæð er komið inn í anddyri með hita í gólfi. Gert ráð fyrir innfelldri lýsingu í steyptu lofti neðri hæðar. Þar eru þrjú svefnherbergi,  rúmgott baðherbergi með hita í gólfi, gert er ráð fyrir baðkari auk sturtu. Einnig er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu. Við hlið baðherbergis er rúmgóð geymsla en einnig er gert ráð fyrir að vera með þvottaaðstöðu þar.

Rúmgóður bílskúr með 2,70 m lofthæð og verður bílskúrshurð frágengin með fjarstýrðum opnara.

Stiginn á milli hæða er steyptur, handrið er skilað með bráðabirgðarhandriði.

Á efri hæð er samliggjandi stofa og eldhús með mikilli lofthæð sem og aukin lofthæð í öllum rýmum.  Hiti í gólfi við útbyggðum glugga í stofu. Úr stofu er gengið út á stórar 17 fm svalir með gríðarmiklu útsýni, sjón er sögu ríkari. Rúmgott svefnherbergi. Baðherbergi er með hita í gólfi, gert er ráð fyrir sturtu.

HÚSIN ERU BYGGÐ Í SAMRÆMI VIÐ NÚTÍMA ÞARFIR OG KRÖFUR 

Húsin eru byggð á þjappaðan malarpúða, staðsteypt og algjörlega aðskilin frá hvort öðru með tommu ull frá púða/jörð og alveg upp í þak. Þau eru rækilega járnbent með tvöfaldri járnagrind.

Innveggir eru úr gifsi, tvöfalt klæddir, innra lag er krossviður og ytra lag er gifs, uppbyggðir með blikkstoðum og einangraðir.

Lagnir eru rör í rör Reuhau. Ofnar á útveggjum eru oftast undir gluggum. Gluggar eru úr timbri fullmálaðir dökkgráir innan og utan. Veggir eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir eina umferð. Gólf eru slípuð, gætu þarfnast smávægilegrar flotunnar sumstaðar. Einangrun útveggja er plasteinangrun innan á og með múrhúð.

Vel er lagt í allt rafmagn í húsunum og því miklir möguleikar. T.d. er  Allar rafmagnslagnir verða komnar með ídregnu vinnuljósarafmagni og töfluskápur með lekaliðum. Gert er ráð fyrir bílahleðslustöð að utanverðu við bílskúrshurð.

Vel er hugsað fyrir loftun í bílskúr, baðherbergjum, anddyri og stofu.

Loft efri hæða skilast með lagnagrind (rafmagnsgrind) tilbúin til klæðningar.

Búið verður að ullar einangra þak og ganga frá loftun og rakasperru.

Húsin eru með hefðbundnu sperruþaki sem hvílir á útveggjum, límtrésbita og stálbita.

Þök verða klædd með lituðu bárustáli. Þakkantur gengur vel út, sérstaklega að sunnanverðu þar sem garðpallur er að hluta undir þaki. Þakkantur er úr timbri, þakrennur og niðurföll úr lituðu áli.

Efri hæð húsanna er steinuð með ljósri steiningu og neðri hæð og garðveggir slétt filteraðir í ljósum lit. Glerhandrið á svölum, stigar frágengnir upp í efri lóð.

LÓÐIN

Lagt verður fyrir heitum potti í bakgarði að sunnanverðu, einnig er lagt fyrir blöndunartæjum og ofni inn í lítinn geymsluskúr sem er tengdur pallinum.

Lóð skilast fullfrágengin, tyrfð með garðpalli sunnan megin,  timburskjólvegg milli lóða að ofanverðu, hellulagt bílaplan með hitalögn.

                 

URRIÐAHOLT Í GARÐABÆ

SKILALÝSING BREKKUGATA 12 og 14.

HVERFIÐ

Húsin standa við Brekkugötu í Urriðahverfi í Garðabæ. Skammt frá er Urriðaskóli sem er grunn- og leiksskóli hverfisins. Í næsta nágrenni er einn besti golfvöllur landsins Urriðavöllur, sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilsstaðavatn og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvikjum. Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum og er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem þar býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Nánar má lesa um hverfið á vefnum http://urridaholt.is/

HÚSIN

Hvort hús er skráð 207 fermetrar þar af er bílskúr 26 fermetrar. Í hverju húsi fyrir sig er stofa, eldhús og fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi, geymsla ásamt innbyggðum bílskúr.

Á neðri hæð er komið inn í anddyri með hita í gólfi. Gert ráð fyrir innfelldri lýsingu í steyptu lofti neðri hæðar. Þar eru þrjú svefnherbergi,  rúmgott baðherbergi með hita í gólfi, gert er ráð fyrir baðkari auk sturtu. Einnig er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu. Við hlið baðherbergis er rúmgóð geymsla en einnig er gert ráð fyrir að vera með þvottaaðstöðu þar.

Rúmgóður bílskúr með 2,70 m lofthæð og verður bílskúrshurð frágengin með fjarst.opnara.

Stiginn á milli hæða er steyptur, handrið er skilað með bráðabirgðarhandriði.

Á efri hæð er samliggjandi stofa og eldhús með mikilli lofthæð sem og aukin lofthæð í öllum rýmum.  Hiti í gólfi við útbyggðum glugga í stofu. Úr stofu er gengið út á stórar 17 fm svalir með gríðarmiklu útsýni, sjón er sögu ríkari. Rúmgott svefnherbergi. Baðherbergi er með hita í gólfi, gert er ráð fyrir sturtu.

HÚSIN ERU BYGGÐ Í SAMRÆMI VIÐ NÚTÍMA ÞARFIR OG KRÖFUR  

Húsin eru grunduð á þjappaðan malarpúða, staðsteypt og algjörlega aðskilin frá hvort öðru með tommu ull frá púða/jörð og alveg upp í þak. Þau eru rækilega járnbent með tvöfaldri járnagrind.

Innveggir eru úr gifsi, tvöfalt klæddir, innra lag er krossviður og ytra lag er gifs, uppbyggðir með blikkstoðum og einangraðir.

Lagnir eru rör í rör Reuhau. Ofnar á útveggjum eru oftast undir gluggum. Gluggar eru úr timbri fullmálaðir dökkgráir innan og utan. Veggir eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir eina umferð. Gólf eru slípuð, gætu þarfnast smávægilegrar flotunnar sumstaðar. Einangrun útveggja er plasteinangrun innan á og múrhúð.

Vel er lagt í allt rafmagn í húsunum og því miklir möguleikar. T.d. er  Allar rafmagnslagnir verða komnar með ídregnu vinnuljósarafmagni og töfluskápur með lekaliðum. Gert er ráð fyrir bílahleðslustöð að utanverðu við bílskúrshurð.

Vel er hugsað fyrir loftun í bílskúr, baðherbergjum, anddyri og stofu.

Loft efri hæða skilast með lagnagrind (rafmagnsgrind) tilbúi til klæðningar.

Búið verður að ulla þak og ganga frá loftun og rakasperrum.

Húsin eru með hefðbundnu sperruþaki sem hvílir á útveggjum, límtrésbita og stálbita.

Þök verða klædd með lituðu bárustáli. Þakkantur gengur vel út, sérstaklega að sunnanverðu þar sem garðpallur er að hluta undir þaki. Þakkantur er úr timbri, rennur og niðurföll úr lituðu áli.

Efri hæð húsanna er steinuð með ljósri steiningu og neðri hæð og garðveggir slétt filteraðir í ljósum lit. Glerhandrið á svölum, stigar frágengnir upp í efri lóð.

LÓÐIN

Lagt verður fyrir heitum potti í bakgarði að sunnanverðu einnig er lagt fyrir blöndunartækjum og ofni inn í lítinn geymsluskúr sem er tengdur pallinum.

Lóð skilast fullfrágengin, tyrfð með garðpalli sunnan megin,  timburskjólvegg milli lóða að ofanverðu, hellulagt bílaplan með hitalögn.

Afhending á vormánuðum 2021 eða eftir samkomulagi.

BYGGINGARAÐILI

Fagsmíði ehf., kt. 670395-2869

Byggingarstjóri: Gunnar Örn Rúnarsson, húsasmíðameistari hjá Fagsmíði ehf.,

Útlit og skipulag: KR arkitektar

Burðarhönnun og lagnir: VSÓ

Lóðahönnun: Landslag, landslagsarkitektar